Fylgdu okkur á TikTok! @www.lokkarogskart.is



Skilmálar endurgreiðslu

Útsöluvörum, eyrnalokkum, septum lokkum (ekta og fake), naflalokkum, neflokkum, tungulokkum, geirvörtulokkum og öðru body-skarti fæst hvorki skilað né skipt.

Ef svo ólíklega vill til að vara reynist gölluð er best að hafa samband við okkur sem fyrst og við útvegum nýja vöru eins fljótt og mögulegt er.

Ef þú lendir í einhverjum vandræðum með vöru sem þú verslaðir hjá okkur þá er einfaldast að senda okkur skilaboð á facebook síðunni okkar, en einnig er hægt að senda okkur e-mail á lokkarogskart@gmail.com og við reynum að svara eins fljótt og við getum.

Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 hefur neytandi 14 daga frá því að samningur var gerður milli hans og seljanda til að hætta við kaupin án nokkurra skýringa og fá vöruna endurgreidda. Neytandanum ber að sjálfsögðu að skila vörunni óskemmdri til seljandans. Ákvæðið um að falla frá samningi gildir t.d. ekki í tilvikum þar sem vara eða þjónusta hefur verið sérsniðin að kröfum neytandans eða innsigli hafa verið rofin.